Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi situr fyrir svörum í næsta þætti af Spursmálum sem verður sýndur á mbl.is klukkan 14 í dag.
Í byrjun apríl lýsti Halla Hrund yfir forsetaframboði sínu. Í kjölfarið óskaði hún eftir tímabundu leyfi frá starfi sínu sem orkumálastjóri hjá Orkustofnun til að einbeita sér að fullu að framboðinu.
Áður en Halla Hrund ákvað að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands var hún lítt þekkt í íslensku samfélagi. Frá þeim stutta tíma hefur mikið vatn runnið til sjávar en samkvæmt nýjustu fylgiskönnunum virðist Halla Hrund leiða lestina og mælist með mest fylgi frambjóðenda.
Lagðar verða krefjandi spurningar fyrir Höllu Hrund í þættinum er tengjast valdsviði forsetans og knúið á um svör hvers konar forseti hún hyggst verða nái hún kjöri.
Yfirferð á fréttum vikunnar verður í sérlega góðum höndum í Spursmálum þessa vikuna. Eva Dögg Davíðsdóttir nýr þingmaður Vinstri Grænna mætir í settið ásamt Guðmundi Árna Stefánssyni varaformanni Samfylkingarinnar til að ræða það sem mest fór fyrir í líðandi viku. Búast má við að líflegar umræður kunni að skapast þeirra á milli.