Icelandair undirbýr nú sérstakar mótvægisaðgerðir vegna fyrirhugaðar verkfallsaðgerða á Keflavíkurflugvelli. Verkföll hefjast á fimmtudag að öllu óbreyttu en farþegar Icelandair sem eru á leið úr landi munu geta fært sig um flug.
„Við vonum auðvitað að deiluaðilar komi að samkomulagi,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við mbl.is. Á hann þar við um kjaraviðræður Félags flugmálastarfsmanna (FFR) og Sameykis við samninganefnd Samtaka atvinnulífsins, sem standa nú yfir í Karphúsinu.
Kjaraviðræður eru á viðkvæmu stigi að sögn FFR. Fundur hófst í Karphúsinu klukkan 9 í morgun og viðræður hafa lítið þokast áfram.
Þetta er í þriðja sinn á hálfu ári sem boðað er til aðgerða á Keflavíkurflugvelli. Í þetta skiptið eru það farþegar á leið úr landi sem verða fyrir mestum áhrifum af fyrirhuguðum verkfallsaðgerðum.
Starfsfólk í öryggisleit og farþegaflutningum leggur niður störf. Icelandair undirbýr nú sérstakt viðbragð til að bregðast við ef til verkfalla kemur. Viðbragðið er til þess fallið að láta farþega finna sem minnst fyrir áhrifum verkfalla.
„Til dæmis munum við bjóða farþegum á leið frá Íslandi að færa sig á annað flug til síns áfangastaðar. Flestir ættur að geta fært sig yfir á flug sem fer daginn eftir eða daginn áður, eða jafnvel innan sama dagsins,“ segir Guðni enn fremur.
Guðni segir að frekari upplýsingar um fyrirkomulag mótvægisaðgerðanna komi í ljós er nær dregur.
Kl. 16 þann 9. maí tekur ótímabundið þjálfunarbann til félagsfólks Sameykis sem starfar hjá Isavia ohf. sem leiðbeinendur og vottaðir leiðbeinendur á gólfi.
Starfsfólk í öryggisleit á Keflavíkurflugvelli leggur niður störf kl. 04-08 á föstudag, 10. maí, síðan aftur 16., 17. og 20. maí. Starfsfólk sem sinnir farþegaflutningum leggur niður störf þessa sömu daga en kl. 8-12.
89,87% þeirra sem greiddu atkvæði kusu með verkfallsaðgerðum, sem hefjast að óbreyttu á fimmtudag. FFR segir við mbl.is að deilan hafi ekki strandað á launaliði kjarasamningsins heldur sértækum atriðum á borð við réttindi í fæðingarorlofi og greiðslur fyrir aukavaktir.