Um 15 manns mættu til mótmæla á Keflavíkurflugvelli í kvöld. Samtökin No Borders boðuðu til mótmælanna vegna brottvísunar þriggja nígerska kvenna, Blessing, Mary og Esther.
Konurnar þrjár hafa undanfarna daga verið í gæsluvarðhaldi á Hólmsheiði en vísa átti þeim úr landi í kvöld, á milli kl. 23 og 01, að því er fram kom í tilkynningu frá No Borders.
Konurnar þrjár hafa dvalið á Íslandi í nokkur ár. Konurnar hafa allar lýst því að þær séu þolendur mansals. Útlendingastofnun hafnaði seinni partinn í dag beiðni lögmanns um frestun brottvísunar einnar þeirra, Blessing, af heilsufarsástæðum.
Konurnar fengu endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd fyrir um ári síðan. Við það misstu þær rétt á þjónustu og búsetu.