Í dag verður suðlæg eða breytileg átt, 3 til 10 metrar á sekúndu og dálítil væta, en úrkomulítið um landið austanvert.
Hiti verður á bilinu 3 til 11 stig yfir daginn, svalast við norðausturströndina.
Suðvestan 5-10 m/s verða á morgun og skúrir eða slydduél, en þurrt á Suðaustur- og Austurlandi fram eftir degi. Hiti verður á bilinu 2 til 10 stig, mildast austan til. Norðlægari átt verður annað kvöld og léttir til sunnanlands.