Nefna Baldur oftast sem annað val

Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi.
Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Baldur Þórhallsson kann að hafa lækkað jafnt og þétt í fylgiskönnunum, en hann ber hins vegar höfuð og herðar yfir aðra frambjóðendur þegar leitað er svara við því hvern menn vildu næsthelst kjósa ef „þeirra frambjóðandi“ væri ekki í kjöri.

Í könnun Prósents fyrir Morgunblaðið, sem gerð var í liðinni viku og fram á helgi, nefndu 25% svarenda Baldur sem þann sem þeir myndu næsthelst kjósa. Það er töluvert meira fylgi en hann uppskar í síðustu könnun, en þá kváðust tæp 18% ætla að kjósa hann í forsetakjörinu.

Aðrir efstu frambjóðendur fá töluvert minna fylgi sem næstbesti kosturinn, á bilinu 13-16%. Svo hann kann vel að eiga eitthvað inni þegar í kjörklefann er komið.

Þeir sem styðja Baldur nú virðast helst halla sér að Höllu Hrund Logadóttur (33%) ef hans nyti ekki við á kjörseðlinum, 23% nefna Jón Gnarr en 20% Höllu Tómasdóttur.

Stuðningsmönnum Höllu Tómasdóttur líst hins vegar flestum best á Katrínu Jakobsdóttur, en 33% þeirra nefna hana sem næsta val.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert