Jón Gnarr grínisti og forsetaframbjóðandi fullyrðir að engin „frambjóðönd“ elski íslensku sauðkindina jafnmikið og hann.
Þetta ritar hann á X, áður Twitter, þar sem hann birtir jafnframt mynd af sér í fjárhúsi kyssa lítið lamb á munninn.
„það er eitt að halda á lambi, annað að kyssa það. enginn frambjóðönd elskar íslensku sauðkindina jafnmikið og ég,“ segir í tísti grínistans.
það er eitt að halda á lambi, annað að kyssa það. enginn frambjóðönd elskar íslensku sauðkindina jafnmikið og ég pic.twitter.com/NMNMLayg7P
— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) May 18, 2024