Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, var á dögunum sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Háskólann í Oulu í Finnlandi.
Af því tilefni flutti hann ávarp þar sem hann lagði meðal annars áherslu á mikilvægi vísindalegra rannsókna í samfélaginu sérfræðiþekkingar og viðurkenndra rannsóknaraðferða. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu forsetans.
Heimsókn Guðna í Háskólann í Oulu var þó ekki eina erindi hans í Finnlandi því hann átti jafnframt fund með Alexander Stubb sem tók við embætti forseta Finnlands fyrr á árinu.
Segir í tilkynningunni að þeir hafi rætt samstarf Íslendinga og Finna í áranna rás, norræna samvinnu og umskipti á alþjóðavettvangi eftir innrás Rússlands í Úkraínu. Auk þess sem Stubb rakti sjónarmið Finna í varnar- og öryggismálum.