Hnífjafnar í veðbönkum

Staðan hefur breyst frá því í gærkvöldi.
Staðan hefur breyst frá því í gærkvöldi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Halla Tómasdóttir og Katrín Jakobsdóttir eru nú hnífjafnar hjá veðbankanum Coolbet með stuðulinn 1.90 hvor um sig.

Stuðull­inn seg­ir til um ávöxt­un pen­ings­ins sem veðjað er á ákveðinn fram­bjóðanda. Það er að segja því lægri sem stuðull­inn þeim mun lík­legra er talið að fram­bjóðand­inn hljóti kjör. Í gærkvöldi var Halla efst með stuðulinn 1.85 og Katrín í öðru sæti með stuðulinn 2.05.

Töluvert bil er á milli efstu tveggja sætanna og því þriðja en þar situr Halla Hrund Logadóttir með stuðulinn 8.00. Baldur er síðan í því fjórða með stuðulinn 18.00 og Jón Gnarr í því fimmta með 20.00.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert