Ekki tímabært að ræða framboð til formanns

Bjarkey segir ótímabært að ákveða hvort hún bjóði sig fram …
Bjarkey segir ótímabært að ákveða hvort hún bjóði sig fram til formanns VG. Mbl.is/Eggert Johannesson

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra segir ekki tímabært að segja hvort hún sækist eftir formennsku í Vinstri grænum í haust.

„Það er nú ekki tímabært að ræða eitthvað slíkt,“ sagði Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, matvælaráðherra aðspurð í samtali við mbl.is.

Blaðamenn náðu tali af ráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í snemma í dag, föstudag, en þá lá fyrir að VG myndi kjósa sér nýja forystu í haust.

Stjórn VG ákvað síðan í kvöld að flýta landsfundi sínum til 4. október.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert