Rithöfundasamband Íslands mótmælir fyrirhuguðum sumarlokunum flestra útibúa Borgarbókasafnsins í sumar.
Þetta segir í ályktun frá stjórn sambandsins.
Sambandið bendir á að með lokunum skerðist nauðsynleg og lögbundin þjónusta við íbúa Reykjavíkur. Finnst þá stjórn sambandsins sérlega varasamt að loka bókasöfnunum á sama tíma og börn hafa ekki aðgang að bókasöfnum skólanna.
Sambandið bendir á að kennarar hvetji foreldra til að viðhalda lestri barna sinna yfir sumartímann og því sé ótækt að borgin, sem beri ábyrgð á grunnskólum og þar með lestrarkennslu sveitarfélagsins, loki bókasöfnum í hagræðingarskyni og hamli jafnframt barnafjölskyldum og öðrum lesendum nauðsynlegt aðgengi að lesefni yfir sumartímann.
Stjórn sambandsins segir einnig í að slík sparnaðarráðstöfun muni koma harðast niður á börnum í efnaminni fjölskyldum sem ekki hafa góðan aðgang að bókum heima.
Það muni vera samfélaginu dýrkeypt þegar upp er staðið.