Ökumenn látnir bíða eftir engu

Morgunblaðið/KHJ

Búið er að loka fyrir almenna umferð ökutækja ofarlega á Laugavegi í Reykjavík, mitt á milli Hlemmtorgs og Snorrabrautar.

Í stað umferðargötu má nú þar finna göngugötu. En þrátt fyrir þá breytingu eru gömlu umferðarljósin enn virk.

Meðfylgjandi ljósmynd var tekin frá nýju göngugötunni og er horft vestur í átt að verslunarhluta Laugavegar. Líkt og sjá má er grænt umferðarljós á bílaumferð sem ekki er til staðar. Á meðan græna ljósið logar bíða ökumenn á Snorrabraut á rauðu ljósi. Eru þeir þannig látnir víkja fyrir engum.

Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir þetta hluta af stefnu meirihlutans í borginni – í stað þess að liðka fyrir umferð er hægt á öllu.

„Þessi ljós eru bæði tilgangslaus og óskiljanleg,“ segir hún. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert