Íbúar í Mosfellsdal mála hámarkshraða á veg

Íbúa hafa málað hámarkshraða á veginn.
Íbúa hafa málað hámarkshraða á veginn. Ljósmynd/Aðsend

Íbúar í Mosfellsdal hafa brugðið á það ráð að mála hámarkshraða á veg til að aðstoða Vegagerðina.

Í tilkynningu sem barst mbl.is kemur fram að íbúum Mosfellsdals sé nóg boðið af hraðakstri og hafi í mörg ár kallað eftir aðgerðum til að bæta umferðaröryggi.

Telja fjárskort mikinn

Sagt er að fjárskortur Vegagerðarinnar hafi náð hámarki með alvarlegum afleiðingum.

Þá hafi ekki tekist að sinna viðeigandi og nauðsynlegu viðhaldi og er farið að líða á sumarið og fjöldi ferðamanna á vegum eykst.

Þá hafi margir lagt leið sína að Þingvöllum nú um helgina í tilefni 80 ára afmælis lýðveldisins. Liggur ein leiðanna til Þingvalla í gegnum Mosfellsdal með tilheyrandi hraðakstri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert