„Parísarhjólið hefur verið vinsælt meðal ferðamanna og þeir heimamenn sem hafa komið hafa notið þess. Þeir mættu þó alveg vera fleiri,“ segir Kane Taylor, eigandi Taylors Tivoli Iceland ehf., sem á og rekur Parísarhjólið sem sett hefur verið upp við Reykjavíkurhöfn.
Ekki hefur verið mikil sjáanleg umferð við hjólið það sem af er sumri og Kane játar það fúslega að hann hefði kosið að fá fleiri gesti. Hann kveðst ekki vera með aðsóknartölur á reiðum höndum en þær séu þó nærri þeim væntingum sem lagt var upp með. „Þær mættu alveg vera tvöfalt hærri,“ segir Kane í léttum tón. Hann segir að staðan verði metin í lok sumars. Enn sé von til að þess að aðsóknin glæðist en það gæti þó ráðist af veðri. Þannig hafi nýliðin vika til að mynda verið afar róleg enda rok og rigning flesta daga.
Aðspurður segir Kane að hann hafi gert eitt og annað til að höfða til heimamanna. Þannig sé hægt að fá miða á lægra verði ef þeir eru keyptir í gegnum vefsíðu fyrirtækisins og boðið hafi verið upp á tvo fyrir einn í gegnum símafélagið Nova. Neikvætt umtal hafi hins vegar skemmt fyrir.
Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag.