Alma Mjöll nýr framkvæmdastjóri þingflokks VG

Alma ásamt öðru starfsfólki þingflokksins.
Alma ásamt öðru starfsfólki þingflokksins. Ljósmynd/Aðsend

Alma Mjöll Ólafsdóttir er nýr framkvæmdastjóri þingflokks Vinstri grænna.

Í tilkynningu frá Vinstri grænum segir að Alma Mjöll hafi starfað sem rannsóknarblaðakona á Heimildinni og hafi í störfum sínum lagt áherslu á málaflokka eins og húsnæðismál, útlendingamál og heilbrigðismál. Hún hafi unnið til blaðamannaverðlauna Íslands árið 2020 fyrir umfjöllun um loftlagsmál.

Þá sé hún menntuð í sviðslistum frá Listaháskóla Íslands og hafi áður starfað sem leikstjóri.

Uppfært kl. 18.42. Greint var frá því að Alma væri að taka við starfinu af Sunnu Valgerðardóttur. Hið rétta er að hún tekur við starfinu af Önnu Lísu Björnsdóttur. Sunna starfaði áður fyrir þingflokkinn, en nú hefur hún störf á skrifstofu Vinstri grænna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert