Leikskólareiknirinn, sérstök reiknivél sem sýna á foreldrum barna í Reykjavík áætlaða spá um stöðu barna sinna á biðlista eftir leikskólaplássi, er í sumarleyfi til 1. desember næstkomandi. Þetta kemur fram á heimasíðu borgarinnar.
Athygli mbl.is var vakin á þessari staðreynd í kjölfar þess að Einar Þorsteinsson, borgarstjóri, nefndi reikninn sérstaklega í viðtali í Spursmálum í sambandi við öfluga upplýsingagjöf til foreldra í höfuðborginni.
Hann sagði þar meðal annars:
„Ég held reyndar að borgin sé líklega með bestu upplýsingagjöfina þegar kemur að þessu stóra verkefni að úthluta börnum leikskólaplássi. Við opnuðum þarna stafrænt form, leikskólareikninn, sem á að svara þessu. Hann leysir ekki leikskólavandann, en hann veitir upplýsingar og ég heyri það frá foreldrum úr öðrum sveitarfélögum, meðal annars þínu sveitarfélagi í Garðabæ, að þetta er að gagnast mjög vel, að þau eru að skoða, bíddu hérna er leikskóli, svona eru margir með þennan skóla í fyrsta vali og annað val.“
Á heimasíðu borgarinnar segir hins vegar:
„Leikskólareiknirinn er í sumarfríi til 1. desember 2024. Verið er að úthulta plássum og biðlistatölur geta verið óáreiðanlegar á meðan á því stendur.“
Ekki kemur fram á heimasíðu borgarinnar hvenær Leikskólareiknirinn tók að ganga á áunnið orlof sitt en hins vegar staðfesta upplýsingarnar að upplýsingagjöf til foreldra liggur niðri að minnsta kosti þriðjung ársins.
Þegar Leikskólareiknirinn var kynntur til leiks í mars síðastliðnum sagði í tilkynningu frá borginni að honum væri ætlað að fækka símtölum til skóla- og frístundasviðs borgarinnar og að hann myndi um leið einfalda upplýsingagjöf til borgarbúa. Þá sagði borgin að reiknivélinni væri ætlað að auka gagnsæi í upplýsingamiðlun og „sýna stöðuna eins og hún er hverju sinni.“
Viðtalið við Einar Þorsteinsson í Spursmálum má sjá og heyra í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.