Frú Agnes M Sigurðardóttir vígði sr. Guðrúnu Karls Helgudóttur sem biskup Íslands í Hallgrímskirkju í dag.
Með biskupi þjónaði fyrir altari sr. Sveinn Valgeirsson, sr. Elínborg Sturludóttir, sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir, sr. Eiríkur Jóhannsson ásamt vígslubiskupum og vígsluvottum, að því er segir í tilkynningu Þjóðkirkjunnar.
Dómkórinn, kór Hallgrímskirkju og kórar Grafarvogskirkju sungu.