Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, segir að Ríkisútvarpið þurfi augljóslega að fara í brýnar aðhaldsaðgerðir.
Aðhaldsaðgerðir sem boðaðar voru í rekstri Rúv fyrr á árinu hafa ekki skilað tilætluðum árangri. Afkoma RÚV í maí til júlí olli vonbrigðum og tapið það sem af er ári nemur um 470 milljónum króna.
Búist er við að 200 milljóna króna tap verði af rekstrinum í ár að óbreyttu. Þetta kemur fram í fundargerð stjórnar Ríkisútvarpsins frá 28. ágúst sem birt var í gær.
Segir Lilja að hver og ein stofnun þurfi að vera innan fjárheimilda og segir gríðarlega mikilvægt að Rúv sinni því.
„Stofnunin er að fara í aðhaldsaðgerðir sem munu taka á þessu tapi á fyrri árshluta og ég styð það að sjálfsögðu og tel það mjög brýnt,“ segir Lilja.