Vill minnka umsvif ríkisins

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Guðrún Haf­steins­dótt­ir, odd­viti Sjálf­stæðis­flokks­ins í Suður­kjör­dæmi, seg­ir mörg mál bera á góma í þessu víðfeðma kjör­dæmi. Nefn­ir hún t.d. efna­hags­mál, vexti, fyr­ir­hugað kíló­metra­gjald og hæl­is­leit­enda­mál­in.

    „Ég sem sjálf­stæðismann­eskja myndi vilja sjá ríkið drag­ast meira sam­an og það færi meira hér út á hinn al­menna markað,“ seg­ir hún.

    Hún ver verðmiðann á Ölfusár­brú og seg­ir að brú­in þurfi að þola álag eins og til dæm­is Suður­land­sj­arðskjálfta, krapa­flóð og mikið vatns­rennsli.

    Hæl­is­um­sókn­um fækkað um 54%

    Guðrún gengst við því að hæl­is­leit­enda­mál­in hafi farið úr bönd­un­um í stjórn­artíð Sjálf­stæðis­flokks­ins, en seg­ir að upp­hafið hafi verið þegar út­lend­inga­lög voru samþykkt árið 2016 í þver­póli­tískri sátt.

    Hún bend­ir á að hæl­is­um­sókn­um hafi fækkað um 54% á þessu ári. Hún vill frek­ar ein­blína á að taka á móti kvóta­flótta­mönn­um en hæl­is­leit­end­um.

    „Ég held að við get­um ekki tekið nema á móti ein­hverj­um tug­um flótta­manna [á ári] svo vel sé,“ seg­ir Guðrún.

    Nán­ar um málið
    í Morg­un­blaðinu
    Áskrif­end­ur:
    Nán­ar um málið
    í Morg­un­blaðinu
    Áskrif­end­ur:

    Bloggað um frétt­ina

    Fleira áhugavert

    Innlent »

    Fleira áhugavert