Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti bankans um 0,5 prósentustig.
Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 8,0%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.
Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir að verðbólga hafi haldið áfram að hjaðna og var 4,6% í janúar. Undirliggjandi verðbólga hefur einnig minnkað og hefur ekki verið minni í þrjú ár. Útlit er fyrir áframhaldandi hjöðnun verðbólgu á næstu mánuðum.
Þetta er þriðja skiptið í röð sem nefndin lækkar vexti bankans, en í nóvember voru þeir lækkaðir um 0,5 prósentustig og 0,25 prósentustig í október. Var það fyrsta skipti í næstum fjögur á, eða frá því í nóvember 2020 sem Seðlabankinn lækkaði vexti.
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2024/11/20/styrivextir_laekkadir_um_0_5_prosentustig/
Hæst fóru vextir bankans á síðustu árum í 9,25%. Héldust þeir þannig frá ágúst 2023 þangað til í ágúst á síðasta ári.
Bæði hagfræðideild Landsbankans og greiningardeild Íslandsbanka höfðu spáð 0,5 prósentustiga vaxtalækkun hjá Seðlabankanum.
„Hægt hefur á vexti eftirspurnar í takt við þétt taumhald peningastefnunnar og spennan í þjóðarbúinu er í rénun. Dregið hefur úr umsvifum á húsnæðismarkaði og hægt á hækkun húsnæðisverðs. Vísbendingar eru þó um að krafturinn í þjóðarbúinu sé meiri en bráðabirgðatölur þjóðhagsreikninga gefa til kynna og áfram mælist nokkur hækkun launakostnaðar,“ segir enn fremur í tilkynningunni.
„Þótt verðbólga hafi hjaðnað og verðbólguvæntingar lækkað er enn verðbólguþrýstingur til staðar. Það kallar á áframhaldandi þétt taumhald peningastefnunnar og varkárni við ákvarðanir um næstu skref. Við bætist aukin óvissa í alþjóðlegum efnahagsmálum. Mótun peningastefnunnar næstu misseri mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga,“ segir þar einnig.