Framsóknarflokkurinn með miðstjórnarfund

Miðstjórn Framsóknarflokksins kemur saman á fundi í dag og á morgun á Hótel Loftleiðum í Reykjavík. Miðstjórnarfundur hefst með setningu formanns og kosningu embættismanna, en síðan mun Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, ræða stjórnmálaviðhorfið og stöðu mála í upphafi kosningavetrar.

Á morgun munu Halldór og fleiri forustumenn flokksins m.a. ræða flokksstarfið á kosningavetri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert