Framsóknarmenn stilla upp í Reykjavík suður

Ákveðið var að viðhafa uppstillingu á framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður á kjördæmisþingi sem haldið var í gærkvöldi. Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra, hefur ein gefið kost á sér í 1. sæti listans.

Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs, lýsti því yfir á þinginu að hann sæktist ekki eftir 2. sæti á listanum en hann var í því sæti fyrir síðustu alþingiskosningar. Á heimasíðu sinni segir Björn Ingi, að hann ætli að einbeita mér að borgarpólitíkinni og gera sitt besta til að tvöfalda fylgi Framsóknarflokksins í næstu borgarstjórnarkosningum - hið minnsta.

Uppstillingarnefnd verður nú skipuð og á að skila tillögum sínum um miðjan desember.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert