Valdimar Leó Friðriksson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur sagt sig úr flokknum. Hann skýrði frá þessu í þættinum Silfri Egils á Stöð 2 í dag. Valdimar tók þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi og hafnaði þar í 14. sæti. Hann ætlar að sitja á þingi það sem eftir er af kjörtímabilinu.