Samfylkingin kynnti í dag aðgerðaáætlun í málefnum barna og barnafólks undir yfirskriftinni Unga Ísland. Í tilkynningu frá flokknum segir að tilgangurinn sé sá að vekja athygli á mikilvægi barnastefnu og vilji Samfylkingin að málefni barna verði í forgangi á verkefnalista næstu ríkisstjórnar.
Meðal aðgerða sem kynntar voru í dag eru eftirfarandi:
- Bætt tannvernd barna með ókeypis eftirliti og forvörnum og stórauknum niðurgreiðslum á tannviðgerðum barna
- Hækkun barnabóta, með því að draga úr tekjutengingum sem koma mun lágtekju- og millitekjuhópum best
- Ókeypis skólabækur fyrir framhaldsskólanema
- Foreldraráðgjöf í öllum sveitarfélögum sem miðist við mismunandi aldursskeið barna
- Sólarhrings aðstoð og ráðgjöf fyrir unga fíkniefnaneytendur og börn með geðræn vandamál
- Stóreflt forvarnarstarf gegn kynferðisofbeldi
- Aukinn stuðningur við börn innflytjenda í skólakerfinu,m.a. með stóraukinni íslenskukennslu