Umræðu um framtíð Reykjavíkurflugvallar vísað til samgöngunefndar

Allsherjarnefnd Samfylkingarinnar hefur samþykkt tillögu Gunnar H. Gunnarssonar um að drög að ályktun um flutning Reykjavíkurflugvallar verði vísað til samgöngunefndar flokksins til umræðu síðar á árinu. Er Gunnar kynnti tillögu sína á fundinum í dag sagði hann sátt hafa náðst um tillöguna í starfshópi og að það beri vott um það hversu góð tillagan sé að hann og Kristján L. Möller hafi báðir getað fallist á hana.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert