Fylgi Samfylkingar og VG jafnmikið

mbl.is/Kristinn

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­inn­ar og Vinstri­hreyf­ing­ar­inn­ar-græns fram­boðs er jafn­mikið, eða 21,2%, sam­kvæmt nýrri skoðana­könn­un, sem Capacent Gallup hef­ur gert fyr­ir Morg­un­blaðið og Rík­is­út­varpið. Fylgi Sjálf­stæðis­flokks­ins mæl­ist nú 39,1%, Fram­sókn­ar­flokks­ins 10%, Frjáls­lynda flokks­ins 5,7%, Íslands­hreyf­ing­ar­inn­ar 2,3% og Bar­áttu­sam­tak­anna 0,6%.

Miðað við niður­stöðu könn­un­ar­inn­ar fengi Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn 26 þing­menn, bætti við sig fjór­um, Sam­fylk­ing fengi 14 þing­menn, tapaði 6, VG fengi 14 þing­menn, bætti við sig 9 mönn­um, Fram­sókn­ar­flokk­ur fær 6 þing­menn, tap­ar 6 og Frjáls­lyndi flokk­ur­inn fengi þrjá þing­menn, tapaði ein­um.

Könn­un­in var gerð dag­ana 17. til 23. apríl. Úrtakið var 1225 manns og svar­hlut­fall 62,4%. Af­stöðu tóku 82,3%, 8,1% voru óákveðin og 7,9% neituðu að svara. 1,7% sögðust ætla að skila auðu.

Spurt var: Ef kosið yrði til Alþing­is í dag, hvaða flokk eða lista mynd­ir þú kjósa? Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: En hvaða flokk­ur eða listi yrði lík­leg­ast fyr­ir val­inu? Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: Hvort er lík­legra að þú kys­ir Sjálf­stæðis­flokk­inn eða ein­hver hinna flokk­anna?

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert