Íslandshreyfingin hefur skilað inn framboðslista til landskjörstjórnar. Flokkurinn hefur áður birt nöfn fimm efstu manna á framboðslistum í öllum kjördæmum en í morgun var allur framboðslisti flokksins í Norðausturkjördæmi birtur og er Sverrir Hermannsson, stofnandi og fyrrum formaður Frjálslynda flokksins, í 20. og síðasta sæti. Aðsetur framboðsins er í Hafnarstræti 106 á Akureyri.