Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í viðtali sem sýnt var í Sjónvarpinu eftir að fyrstu tölur voru birtar í kvöld að enn væri mjög óljóst hvernig lokaniðurstaðan verði. Sjálfstæðisflokkinn virðist þó vera að bæta við sig en ríkisstjórnina vanti greinilega herslumuninn til að halda meirihlutafylgi.