Sveinn: Mjög mikið um útstrikanir og tilfæringar sérstaklega á D-lista

Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um útstrikanir og tilfæringar á listum flokkanna í Reykjavíkurkjördæmi suður samkvæmt upplýsingum Sveins Sveinssonar, formanns kjörstjórnar í kjördæminu. Segir hann búið að handvinna alla vinnu við yfirferð kjörseðla en að tölvuútreikningar séu enn eftir. Þá segist hann vonast til að niðurstöður þeirra liggi fyrir síðar í dag en það sé þó ekki öruggt þar sem um mikla og flókna útreikninga sé að ræða.

Sveinn segir mikið hafa verið um útstrikanir og tilfæringar á listum og mikil vinna hafi verið að fara yfir það allt og skrá það. Hann hafi hins vegar ekki reynslu til að bera fjölda slíkra tilvika saman við fyrri ár. Þá segir hann mest hafa borið á slíku á lista Sjálfstæðisflokksins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert