Geir H. Haarde, forsætisráðherra, mun ganga á fundi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, á Bessastöðum klukkan 16 og biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt.
Geir skýrði í Alþingishúsinu eftir fund með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra, að ákveðið hefði verið að slíta stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar.