Eygló Harðardóttir, alþingismaður og ritari Framsóknarflokksins, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum. „Ég tók sæti á Alþingi í nóvember síðastliðnum eftir að hafa verið varaþingmaður síðan 2003. Á síðasta flokksþingi Framsóknarflokksins hlaut ég afgerandi stuðning til forystu í flokknum og býð mig því fram til að leiða lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi,“ segir í yfirlýsingu Eyglóar.
Hún segir gríðarlega stór verkefni framundan við að verja heimilin og fyrirtækin í landinu svo halda megi uppi „því velferðarríki sem Framsóknarflokkurinn hefur átt þátt í að byggja. Hugmyndafræði framsóknarmanna um samvinnu, samstöðu og sanngirni verður lykilþáttur í úrlausn þeirra. Þessari hugmyndafræði hef ég haldið á lofti í mínu stjórnmálastarfi hingað til og mun gera áfram sem leiðtogi framsóknarmanna í Suðurkjördæmi.“