Ingigerður Sæmundsdóttir, verkefnastjóri í Reykjanesbæ og fyrrum
blaðamaður á Víkurfréttum, ætlar að bjóða sig fram fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í Suðurkjördæmi. Ingigerður ætlar að sækjast eftir 5. sæti á
lista sjálfstæðismanna í kjördæminu. Þetta kemur fram á fréttavef Víkurfrétta.
Ingigerður Sæmundsdóttir tók nýverið við starfi verkefnastjóra FFGÍR í
Reykjanesbæ, sem eru regnhlífarsamtök foreldrafélaga og foreldraráða
grunnskólanna í Reykjanesbæ.
Ingigerður útskrifaðist frá Kennaraháskóla Íslands 1997 og kenndi
stærðfræði og upplýsingatækni í grunn- og framhaldsskólum í tíu ár. Hún
lýkur meistaranámi í viðskiptasiðfræði frá Háskóla Íslands nú í vor.
Hún býr í Reykjanesbæ og er gift Bjarna Jóhannssyni,
knattspyrnuþjálfara og framhaldsskólakennara og eiga þau þrjú börn og
eitt barnabarn.