Á aukakjördæmisþingi framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi sem haldið var í dag að Reykjum í Hrútafirði var samþykkt tillaga þess efnis að val í fjögur efstu sætin á framboðslista framsóknarmanna í kjördæminu vegna kosninga til Alþingis þann 25. apríl nk. skyldi fara fram með póstkosningu allra félagsmanna í kjördæminu.
Munu atkvæðaseðlar verða sendir út þann 3. mars nk. en talning fara fram föstudaginn 13. mars. Skipan í önnur sæti á listann verður ákveðin á kjördæmisþingi sem boðað verður til í framhaldinu. Þetta kemur fram á vef Framsóknarflokksins.