Á aukakjördæmisþingi samfylkingarfólks í Suðurkjördæmi, sem haldið var í gær var ákveðið að velja í 5 efstu sætin á framboðslista flokksins í komandi alþingiskosningum með netprófkjöri þann 7. mars. Rétt til þátttöku í netprófkjörinu hafa allir félagar í Samfylkingunni í Suðurkjördæmi auk þeirra kjósenda Suðurkjördæmis sem sækja sér aðgangslykil að prófkjörinu, að því er segir í tilkynningu.
„Jafnræði kynjanna tryggt í efstu sæti framboðslistans Kjósendur velja 5 nöfn á kjörseðlinum og númera frá 1–5. Þegar talning atkvæða liggur fyrir skal tryggja jafnt kynjahlutfall í 1. og 2. sæti. Næst skal hugað að jafnréttisreglu Samfylkingarinnar um að hvort kyn skuli hafa að lágmarki 40% fulltrúa hvað varðar sæti 3-5. Frambjóðendum er óheimilt að auglýsa í ljósvaka- , prent- og vefmiðlum. Kjördæmisráð gefur út sameiginlegt kynningarrit og gengst fyrir sameiginlegum fundum til kynningar á frambjóðendum."
Framboðsfrestur rennur út mánudaginn 23. febrúar.