Stuðningsyfirlýsing við Guðjón Arnar

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins.
Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. Ásdís Ásgeirsdóttir

Eftirfarandinu hefur borist frá aðildarfélögum Frjálslynda flokksins í Norðausturkjördæmi:

Aðildarfélög Frjálslynda flokksins í Norðausturkjördæmi lýsa hér með yfir eindregnum stuðningi við Guðjón Arnar Kristjánsson til áframhaldandi setu sem formaður flokksins. Við þær aðstæður sem nú eru teljum við brýnt að halda í heiðri þeim stefnumálum sem Frjálslyndi flokkurinn stendur fyrir og hefur gert alla tíð frá stofnun hans, en stefnuskrá flokksins er einstök meðal íslenskra stjórnmálaflokka, enda aðall hans og auðkenni. Guðjón Arnar hefur í raun orðið persónugervingur flokksins og fáir þekkja betur til þeirra aðstæðna sem stefnumál hans höfða til. Nú sem aldrei fyrr er nauðsynlegt að Frjálslyndi flokkurinn sé trúr sínum hugsjónum og teljum við engum betur treystandi til að framfylgja þeim, sem og til að leiða flokkinn í komandi kosningum, en núverandi formann.

Stjórnir kjördæmisráðs og svæðisfélaga Frjálslynda flokksins í Norðausturkjördæmi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert