Björgvin sækist eftir 1. sæti

Björgvin G. Sigurðsson.
Björgvin G. Sigurðsson. Ómar Óskarsson

Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sækist eftir 1. sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi en prófkjör verður haldið þar 7. mars. Björgvin endaði í 1. sæti í prófkjöri fyrir síðustu kosningar.

Haldið verður netprófkjör með tveimur efstu sætum bundnum sitt hvoru kyninu. Segist Björgvin fagna því sérstaklega að Samfylkingin skuli velja þá nýstárlegu og lýðræðislegu leið að gefa öllum kjósendum í Suðurkjördæmi sem þess óska kost á að velja flokknum framboðslista þar sem tryggt er að bæði kynin eiga fulltrúa í efstu sætum.
 
Opið hús verður á vegum framboð Björgvins á efri hæðinni í Tryggvaskála á Selfossi næstkomandi föstudag á milli kl. 17 og 19.  Í næstu viku verður önnur slík samkoma á vegum framboðsins á Víkinni í Reykjanesbæ. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert