Jórunn Einarsdóttir kennari býður sig fram í 2. sæti á lista
Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í forvali í Suðurkjördæmi til
Alþingiskosninga 2009.
„Nú í gjörbreyttu samfélagi og í aðdraganda kosninga hefur ungt fólk í auknum mæli sýnt það og sannað að það eigi fullt erindi í það verkefni sem framundan er hjá nýrri ríkisstjórn,“ segir Jórunn í framboðstilkynningu.
Jórunn er 34 ára og er dóttir Einars Friðþjófssonar og Katrínar Freysdóttur. Hún hefur búið í Vestmannaeyjum nær alla sína tíð en býr nú í Kópavogi þar sem hún er í námsleyfi með manni sínum. Maki hennar er Ágúst Óskar Gústafsson, 34 ára læknir og saman eiga þau tvö börn, Eyþór 7 ára og Katrínu Söru bráðum 5 ára.
Jórunn er kennari að mennt en stundar mastersnám í mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands. Samhliða því kennir hún í Hvammshúsi í Kópavogi sem er sérúrræði fyrir unglinga í 9. og 10.bekk
„Ég gekk í flokkinn haustið 2006 og skipaði 6.sæti listans í Alþingiskosningunum árið 2007. Þar kviknaði neistinn og áhugi minn á pólitísku starfi fyrir alvöru. Ég hef trú á því að nú sem aldrei fyrr sé þörf fyrir ný gildi og nýja stefnu í íslensku þjóðfélagi þar sem jöfnuður manna á milli muni stuðla að aukinni farsæld til handa okkur öllum, ungum sem öldnum. Jöfnuður sem stuðlar að auknu frelsi einstaklinga til athafna hvar sem þeir eru staddir hverju sinni,“ segir í yfirlýsingu Jórunnar.