Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hvetur forsvarsmenn stjórnmálaflokkanna til að tryggja jafnræði kynjanna við uppröðun á listum fyrir komandi alþingiskosningar.
Ásta Ragnheiður sendi í byrjun vikunnar bréf til formanna stjórnmálaflokkana og beindi þeim tilmælum til þeirra að þeir leituðu leiða til að tryggja jafnræði kynjanna við uppröðun á framboðslistum fyrir komandi alþingiskosningar þannig að hlutur kvenna og karla verði sem jafnastur á Alþingi.
Í bréfinu segir Ásta Ragnheiður að sem ráðherra jafnréttismála leggi hún ríka áherslu á það hlutverk flokkanna að tryggja konum og körlum jafna hlutdeild í lýðræðislega kjörnum stofnunum samfélagsins.
Búast megi við að efnahagsástandið letji konur fremur en karla til að gefa kost á sér á framboðslista þar sem rannsóknir sýni að þær bera meiri fjölskylduábyrgð en karlar. Versnandi efnahagur heimilanna geti því orðið til þess að færri konur gefi kost á sér en áður.
Í bréfinu kemur meðal annars fram að í alþingiskosningunum árið 2003 voru konur 43% frambjóðenda en hlutur þeirra á þingi varð einungis 30,2%. Í alþingiskosningunum árið 2007 voru þær 47% frambjóðenda, en urðu 31,7% þingmanna. Líkur hvers kvenframbjóðanda á að ná sæti á Alþingi höfðu þá minnkað frá því sem verið hafði fjórum árum áður. Hlutur kvenna varð mestur eftir kosningarnar 1999 fyrir réttum tíu árum eða 34,9%.
„Í ljósi þessa er mikilvægt að raða konum í örugg sæti á framboðslistum til jafns við karla,“ segir í hvatningarbréfi félags- og tryggingamálaráðherra til formanna flokkanna.