Arnheiður Hjörleifsdóttir hefur tekið þá ákvörðun að ganga til liðs við Framsóknarflokkinn. Samhliða
þeirri ákvörðun sækist hún eftir öðru sæti á lista flokksins í
Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar.
Arnheiður er 33 ára, uppalin á Akranesi en býr ásamt fjölskyldu sinni á Bjarteyjarsandi í Hvalfjarðarsveit.
„Þangað flutti ég ásamt eiginmanni mínum að
loknu námi sem ég stundaði bæði í Reykjavík og Kanada. Ég er með BS gráðu í
landfræði og MS gráðu í umhverfisfræðum. Þá hef ég einnig lokið kennslufræði
til kennsluréttinda. Á Bjarteyjarsandi rekum við sauðfjárbú en höfum auk þess
byggt upp ferðaþjónustu með áherslu á menningu og umhverfi. Við höfum skapað
okkur sérstöðu með því að opna bæinn okkar fyrir börnum á öllum aldri, þar sem
áhersla er lögð á fræðslu, upplifun og virðingu.
Síðan 2003 hef ég gegnt hlutastarfi hjá ráðgjafafyrirtækinu UMÍS í Borgarnesi.
Þar hef ég sinnt fjölbreyttum verkefnum, staðbundnum og á landsvísu, m.a.
ráðgjöf til sveitarfélaga vegna Staðardagskrárvinnu.
Frá árinu 2006 hef ég setið í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar."