Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að gefa kost á sér 1. sæti á framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar í vor. Kristján Þór skipaði 1. sæti á lista flokksins í kosningunum 2007. Sjálfstæðismenn halda prófkjör í kjördæminu 14. mars og rennur framboðsfrestur út í dag.