Sextán í framboði

mbl.is/Eyþór

Sextán frambjóðendur hafa gefið kost á sér til framboðs í kjör um 8 efstu sæti framboðslista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi vegna alþingiskosninganna. Frestur til að skila inn framboðum rann út 20. febrúar en kosið verður um 1.-8. sæti á framboðslista framsóknarmanna á kjördæmisþingi sem haldið verður 15. mars. 

Frambjóðendurnir skiptast í 6 konur og 10 karla, yngsti frambjóðandinn er 19 ára en sá elsti 63 ára. Eftirtaldir skipa hópinn: Anna Kolbrún Árnadóttir, sérkennari, 1.- 8. sæti Birkir Jón Jónsson, alþingismaður, 1.sæti Höskuldur Þ Þórhallsson, alþingismaður, 1. sæti Áskell Einarsson, bóndi, 2.- 8. sæti Eva Ásrún Albertsdóttir, ljósmóðir og dagskrárgerðarmaður, 2.- 3. sæti Huld Aðalbjarnardóttir menningar-og fræðslufulltrúi Norðurþings, 2.- 3. sæti Hólmar Örn Finnsson, viðskiptalögfræðingur, 2.- 4. sæti Sigfús Karlsson, framkvæmdastjóri, 2.- 4. sæti Hallveig Björk Höskuldsdóttir, leiðtogi í málmvinnslu Alcoa, 4. sæti Bernharð Arnarsson, bóndi, 5.- 8. sæti Gunnar Þór Sigbjörnsson, þjónustustjóri, 5. sæti Svanhvít Aradóttir, forstöðuþroskaþjálfi, 5. sæti Þórarinn Ingi Pétursson, bóndi og tamningamaður, 5. sæti Eiður Ragnarsson, starfsmaður í málmvinnslu Alcoa, 7.- 8. sæti Hafþór Eide Hafþórsson, nemi, 7.- 8. sæti Heiða Hilmarsdóttir, skrifstofustjóri hjá Sölku - Fiskmiðlun, 7.- 8. sæti

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert