Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fá í aðdraganda prófkjörsins að senda einn tölvupóst frá Valhöll til sjálfstæðismanna í kjördæminu til að kynna sig og áherslur sínar. Er þetta gert til að draga úr kostnaði frambjóðenda við prófkjörið.
Þetta kemur fram í tölvupósti, sem Marta Guðjónsdóttir, formaður Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, hefur sent til sjálfstæðismanna í borginni.
Þá hefur verið opnaður vefurinn profkjor.is þar sem verða upplýsingar um frambjóðendur.