Tæplega 1100 manns höfðu kosið í opnu netprófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi um áttaleytið í morgun.
Prófkjörinu lýkur kl. 17 í dag og eru kjörstaðir opnir víðsvegar um kjördæmið. Prófkjörið er rafrænt og er kosið á heimasíðunni xs.is. Þar er einnig hægt að fá allar upplýsingar.