Þegar 1100 atkvæði hafa verið talin í Suðvesturkjördæmi er Bjarni Benediktsson með afgerandi forystu í 1. sætið og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í öðru sætinu. Ragnheiður Ríkharðsdóttir hefur hins vegar skotist upp í þriðja sætið.
Jón Gunnarsson er fjórði.
Óli Björn Kárason er fimmti.
Ármann Kr. Ólafsson er sjötti.
Rósa Guðbjartsdóttir er í sjöunda sæti.