Ákveðið hefur verið að fresta talningu atkvæða í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, eftir því sem segir á sunnlendingur.is Ekki er hægt að koma atkvæðum frá Vestmannaeyjum til Selfoss í kvöld sökum ófærðar í lofti og á sjó. Talning hefst klukkan 12 á morgun, sunnudag, en ekki er vitað hvenær úrslit liggja fyrir.