Kristján leiðir í NA-kjördæmi

Kristján Þór Júlíusson.
Kristján Þór Júlíusson. mbl.is/Ómar

Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður, leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í kosningunum 25. apríl. Talningu í prófkjöri flokksins er lokið. Tryggvi Þór Herbertsson er í öðru sæti og Arnbjörg Sveinsdóttir í því þriðja.

Á kjörskrá voru 3.949 manns. Atkvæði greiddu 2.041 og er það 51,7% kosningaþátttaka. Auðir og ógildir seðlar voru 41.

10 manns buðu sig fram í prófkjörinu en kosið var um sex efstu sætin.

Staða sex efstu

  1. Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður - 1.477 atkvæði í 1. sæti

  2. Tryggvi Þór Herbertsson, prófessor - 971 atkvæði í 1.-2. sæti

  3. Arnbjörg Sveinsdóttir, alþingismaður - 861 atkvæði í 1.-3. sæti

  4. Björn Ingimarsson, sveitarstjóri - 816 atkvæði í 1.-4. sæti

  5. Soffía Lárusdóttir, framkvæmdastjóri - 999 atkvæði í 1.-5. sæti

  6. Anna Guðný Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri - 1.220 atkvæði í 1-6. sæti

Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjá menn kjörna í Norðausturkjördæmi í þingkosningunum vorið 2007, þau Kristján Þór Júlíusson, Arnbjörgu Sveinsdóttur og Ólöfu Nordal.

Tryggvi Þór Herbertsson
Tryggvi Þór Herbertsson Mbl.is/ Kristinn
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert