Ásgerður Jóna leiðir í Reykjavík Suður

Ásgerður Jóna Flosadóttir, nýkjörinn varaformaður Frjálslynda flokksins, leiðir framboðslista frjálslyndra í Reykjavíkurkjördæmi Suður. Sturla Jónsson vörubílstjóri skipar annað sætið.

Þetta var ákveðið á fundi kjördæmisráðs Reykjavíkur suður í kvöld.

Þá hefur verið ákveðið að Karl V. Matthíasson, sem nýlega gekk til liðs við Frjálslynd aflokkinn, skipar fyrsta sætið á framboðslista frjálslynda í Reykjavíkurkjördæmi Norður fyrir komandi kosningar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert