Einar Kristinn Guðfinnsson alþingismaður er í efsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi þegar rúmlega helmingur hefur verið talinn.
Ásbjörn Óttarsson, forseti bæjarstjórnar Snæfellsbæjar og útgerðarmaður, sem sækist eftir 1.-2. sæti listans, er kominn í 2. sætið.
Bergþór Ólason var í 2. sæti sæti þegar fyrstu tölur voru kynntar um hádegisbil en hefur fallið um eitt sæti og Þórður Guðjónsson, sem var þriðji, er nú í 6. sæti.
Tæplega fjögur þúsund flokksmenn voru á kjörskrá og greiddu um 2700 manns atkvæði.
Búið að telja 1600 atkvæði, rúm 50%, í spennandi talningu sem hófst í morgun í Hótel Borgarnesi. Staðan samkvæmt þeim er þannig, en að ekki hafa verið gefnar út upplýsingar um atkvæðafjölda á bak við hvern frambjóðanda:
1. Einar Kristinn Guðfinnsson, alþingismaður, Bolungarvík.
2. Ásbjörn Óttarsson, Snæfellsbæ.
3. Bergþór Ólason, Akranesi.
4 Birna Lárusdóttir, Ísafirði.
5. Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
6. Þórður Guðjónsson, Akranesi