„Nú þarf ég bara stuðning þjóðarinnar við að stinga útrásarvíkingunum í fangelsi og sækja þessa peninga sem búið er að stela af þjóðinni,“ sagði Ástþór Magnússon, talsmaður Lýðræðishreyfingarinnar þegar landskjörstjórn hafði úrskurðað framboðslista hreyfingarinnar gilda.
Hann segir að ekki hafi verið annað hægt en að snúa við úrskurðum yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæmanna.
„Það var bara verið að reyna að stöðva framboðið af annarlegum hagsmunum. Það voru ekki viðhöfð eðlileg vinnubrögð þarna.“
Landskjörstjórn vísaði hins vegar frá kröfu Lýðræðishreyfingarinnar um að þeir sem eiga sæti í yfirkjörstjórnum Reykjavíkurkjördæmanna afhendi upplýsingar um tengsl sín við stjórnmálaflokkana og útrásarfyrirtæki. Þá var kröfu hreyfingarinnar um að oddviti kjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis norður víki sæti, hafnað.
„Það þarf að rannsaka þetta. Ég er búinn að þinga með kosningaeftirliti ÖSE og skýra þeim frá þessu öllu og þetta kemur náttúrulega í þeirra skýrslu. Ég held að það sé ekki hægt að vera með kjörstjórnir í lýðræðisríki, sem hugsanlega hafa þegið mútur, það gengur einfaldlega ekki upp. Ég tel að formaður yfirkjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis norður og lögmannsstofan LEX séu að vinna fyrir útrásarvíkingana, sem hafa stolið hundruðum milljarða af þjóðinni, og hafi hagsmuni þjóðarinnar að engu,“ segir Ástþór.
Hann segist bjartsýnn fyrir kjördag, nú fari í hönd stutt en snörp kosningabarátta.
„Við finnum mjög mikinn og vaxandi stuðning við okkar framboð nú þegar við fáum loksins að skýra stefnumál okkar í fjölmiðlum. Nú vona ég bara að þjóðin hafi skynsemi til þess að láta Lýðræðishreyfinguna koma og hreinsa til. Við þurfum að fá tækifæri til þess að taka á þessum málum og koma á beinu lýðræði. Ég tel að við náum stórsigri í þessum kosningum,“ segir Ástþór Magnússon.