Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin mælast með mest fylgi í Suðurkjördæmi samkvæmt könnun, sem Capacent Gallup hefur gert fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið. Fylgi Sjálfstæðisflokks mælist 27,7% og Samfylkingarinnar 27,2%.
Fylgi Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs mælist 23,7% og Framsóknarflokksins 14,3%. Frjálslyndi flokkurinn mælist með 3,7% fylgi, Borgarahreyfingin 2,5% og Lýðræðishreyfingin 0,9%.
Samkvæmkvæmt þessu fá bæði Sjálfstæðisflokkur og Samfylking 3 þingmenn kjörna, Vinstri grænir 2 og Framsóknarflokkur 1. Samfylking og VG bæta við sig kjördæmakjörnum manni samkvæmt þessu en Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur tapa manni hvor flokkur.
Fram kemur í könnuninni að síðastur inn er þriðji maður Samfylkingar og næstur inn væri þriðji maður Vinstri grænna.
50,7% þeirra sem tóku afstöðu sögðust styðja ríkisstjórnina en 49,3% sögðust vera henni andvíg.
Könnunin var gerð 16. til 19. apríl, úrtakið var 800 manns og svarhlutfall 61%.