Birgitta Jónsdóttir, efsti maður á lista Borgarahreyfingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, mætti upp úr klukkan 10 í Hagaskóla til að greiða atkvæði.
Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar kýs í Hagaskóla á ellefta tímanum og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins kýs í Ráðhúsinu um klukkan 11.